Episodes
Tuesday Aug 22, 2023
117. Svifvængjaflugslys
Tuesday Aug 22, 2023
Tuesday Aug 22, 2023
Ewa Wiśnierska var í svifvængjaflugi þegar hún lendir í ómögulegu uppstreymi þrumuskýs. Ewa finnur ísél á stærð við appelsínur dynja á sér og verður naumlega fyrir eldingum. Hún skýst ofar en skýin, missir meðvitund og frýs næstum í hel. Þetta er ótrúlega sagan af Ewu og hvernig hún barðist við að lifa af í skýjunum þar til…..
Við stöllur erum mættar aftur á fóninn, í þetta skiptið erum við back for good. Við erum hættar að tjilla á sundlaugarbökkum en segjum frá afdrifaríkum síðastliðnum mánuði, eða frá því að við heyrðumst síðast. Við söknuðum ykkar.
Wednesday Jun 21, 2023
116. Stórslysið í Karabískahafinu
Wednesday Jun 21, 2023
Wednesday Jun 21, 2023
Fyrir rúmu ári síðan, þann 25. febrúar, lentu 5 kafarar í stórslysi þegar þeir voru við störf í Karabískahafinu. Þeir mættu þennan morgunn alsaklausir í vinnuna en aðeins einn komst aftur heim til fjölskyldunnar sinnar. Video á Instagram - Já elskan
Við hættum að spjalla á 36 mínútu ef þú nennir ekki að hlusta á ramblið í okkur.
Thursday Jun 15, 2023
115. Blæti sem leiðir til dauða
Thursday Jun 15, 2023
Thursday Jun 15, 2023
🚨 Ekki fyrir viðkvæma - þessi þáttur inniheldur lýsingar á pyntingum, morði og barnaklámi.
Sharon Lopatka var með óvenjulegt blæti. Hún vildi ekkert meira en að fá hina endanlegu fullnægingu með því að vera pyntuð og drepin. Í þessum þætti gluggum við inn í heilan á Sharon og förum yfir það hvernig kynferðisleg löngun hennar þróaðist með árunum.
Friday Jun 09, 2023
114. Barnið sem fannst 51 ári síðar
Friday Jun 09, 2023
Friday Jun 09, 2023
Melissu Highsmith var rænt aðeins 22 mánaðar gamallri. 51 ári síðar eða þann 28. nóvember síðastliðinn fannst hún.
Myndir á instagram!
Friday Jun 02, 2023
113. Histeríur
Friday Jun 02, 2023
Friday Jun 02, 2023
Ingibjörg fer yfir ótrúlegar histeríur í einum stuttum og sykursætum þætti. Það er svo sem ekkert meira um það að segja en þið eruð best takk bæ.
Friday Jun 02, 2023
112. WE ARE BACK
Friday Jun 02, 2023
Friday Jun 02, 2023
Lastu fyrirsögnina eins og við værum að öskra hana?
Það er gott því við erum svona peppaðar að vera mættar aftur eftir langa pásu. Þessi pása var svo atburðarík að við ákváðum að við þyrftum að tileinka heilum þætti í gott spjall um hvað við vorum að bralla.
Its good to be back
Wednesday Feb 22, 2023
111. Hjúkrunarfræðingurinn sem drap
Wednesday Feb 22, 2023
Wednesday Feb 22, 2023
Sjúkraliði eða hjúkrunarfræðingur? Skiptir ekki máli, hann gerði alltof mikið af hlutum sem hann átti alls ekki að gera og alltof margir frískir sjúklingar enduðu í öndunarstoppi þegar hann var á vakt. Tilviljun?
Sunday Feb 12, 2023
110. Hvarf þýsku fjölskyldunnar í Death Valley
Sunday Feb 12, 2023
Sunday Feb 12, 2023
Hæ hæ stelpur! Þetta erum við stelpurnar í Já elskan. Þátturinn í dag fjallar um Þýska fjölskyldu sem hvarf sporlaust í Death Valley í Californiu árið 1996. 13 árum seinna kom í ljós hvað kom fyrir í raun og veru.
Matarsmökkunarmyndband á instagram!
Sunday Jan 15, 2023
109. TIFU - okkar sögur
Sunday Jan 15, 2023
Sunday Jan 15, 2023
Það er laugardagskvöld. Við stöllur keyptum okkur kínverskan mat, kveiktum á kertum og settumst við micinn. Í þessum þætti af Já elskan hlæjum að misförum hvor annarrar. Today I Fucked Up - okkar edition. Ha, var landsleikur?
Thursday Jan 05, 2023
108. Brynhildur rænd á Tene
Thursday Jan 05, 2023
Thursday Jan 05, 2023
Brynhildur Karlsdóttir er höfundur af Já elskan intro laginu, tónlistarkona, sviðslistahöfundur, kjánaprik og reglulegur gestur Já elskan. Þið munið kannski eftir henni í 93 þætti af Já elskan "Flo appið virkar ekki" en þar misstókst henni að nota Flo appið sem getnaðavörn, eins og fleirum reyndar.. Í dag mætir hún til leiks, nú nýbökuð móðir með brjóstaþoku. Brynhildur ræðir jólabrasið (eða skortinn því á) og leggur línurnar fyrir komandi ár.